Könnun

Er ekki bloggsíður málið núna þar sem ekki er hægt að komast inná facebook?

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Elín Dögg Baldvinsdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Hjá mömmu og pabba í Pétursbúð :)
  • Hjúskaparstaða: Á föstu
  • Um mig: Jámm, Elín Dögg heiti ég, Baldvinsdóttir og er dökkhært lítið kvikindi sem er 1,68 á hæð. Ég er 89 módel og er í Háskóla Íslands. Ég á mömmu og pabba og einn lítinn bróðir. Á heimilinu er einnig einn hundur. Ég hlusta bara á rokk og metal:Þ (stundum þungarokk...) hef t.d. mjög gaman að hlusta á Lamb of God, Dimmu borgir, Butt Plugg, System of a down og svona. Ég hef líka mjög gaman af því að teikna:) Ég horfi mest á hryllingsmyndir, teiknimyndir og gamanmyndir (góð blanda...) Ég elska að sofa! en ég elska líka að vaka leeeeengi og horfa á sjónvarpið:D og ég elska einnig að hlæja úr mér líffærunum af "fyndnum" bröndurum! Ég er með koooool svartan húmor og hlæ bara hreint öllu :) Ég er löt og nenni varla neinu.. ég verð sérstaklega löt þegar ég er smá full... tíhí:) Ég er hrakfallabálkur

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

af hverju þarf slúður að vera afsprengi satans?

15. nóvember 2010 klukkan 00:12
Sá sem sagði „sticks and stones can break my bones, but words will never hurt me“ hafði kannski rétt fyrir sér... í sumum tilfellum er þetta svo kolrangt..
Ótrúlegt hvað orð geta haft miklar og slæmar afleiðingar. Núna er ég eflaust búin að missa eina bestu vinkonu mína útaf einhverju sem hún heyrði og sem ég átti að hafa sagt eða gert. Ég sjálf hef ekki hugmynd um hvað ég átti að hafa gert og kem alveg af fjöllum hvað það varðar en það var víst greinilega það slæmt að hún hefur ákveðið að trúa því og ákveðið að taka þennan orðróm fram yfir áralanga vináttu okkar. 13 ár gott fólk.. 13 ár greinilega bara farin útum gluggann.
Ég held ég sé að gefast upp.. hef ekki orku í þetta. Ég hef reynt og reynt að styðja við bakið á henni á allan þann hátt sem ég kann og get en það fýkur eins og vindur um eyru. Ég hef gengið í gegnum súrt og sætt með henni meirihluta ævi minnar en nú hefur hún breyst svo mikið, bara á seinustu árum.. að ég þekki hana varla lengur.. allavega hefði hún ekki látið svona áður fyrr...
Það er bara svoooo leiðinlegt að einhver sem manni þykir svona ofboðslega mikið vænt um skuli segja og láta svona.. og láta mann síðan ekki einu sinni vita hvað gengur á.. það er bara allt manni að kenna, og svo er látið mann standa eftir með sára kinn og með fullt af spurningum um hvað hafi eiginlega gerst..
Ég er greinilega alveg kengþroskaheft þegar kemur að mannlegum samskiptum... allavega virðist allt alltaf fara úrskeiðis í hvert skipti sem ég opna á mér munninn eða jafnvel þótt ég geri ekki neitt..
Ég vildi bara að allt færi í sama horf.. bara ef það væri það auðvelt...
Ég ætla bara að grafa mig undir sæng og vera þar þangað til... veit ekki..

Ef þú ert að lesa þetta þá vil ég bara biðjast afsökunar á að hafa sóað tíma þínum seinustu 13 ár í lífi þínu.. ég á allavega eftir að hugsa til þeirra með hlýjum hug eins oft og ég get því þetta eru mjög margar og góðar minningar.

Ég reyni að vera til staðar hvenær sem er... Nánar

2010! Lífmælingatími..

20. september 2010 klukkan 10:39
Jamm og jájá.. mikið búið að gerast síðan ég skrifaði hérna seinast... búin að útskrifast úr menntaskóla, búin að fara í hússtjórnarskólann í Reykjavík og er komin í Háskóla Íslands :P Metnaður eða hvað??

Háskóli er töluvert erfiðari en menntaskóli.. það er ég svo sannarlega búin að komast að.. :s Ég er í námi sem allar bækurnar eru á ensku.. Líffræði... sem þýðir mjög flókin enska í þokkabót! Svo er farið sjúklega hratt yfir efnið.. í hverjum tíma í næstum öllum fögunum sem ég er í er farið í einn kafla. sem þýðir aðeins eitt: ég þarf að ná að lesa tvo kafla í hverri viku, í HVERJU fagi!! Lífmælingar er eitthvað fag sem ég skil eeekki.....

fokk..

en já.. það sem hefur einnig gerst síðan seinast er það að ég missti vinnuna í apríl á þessu ári.. pizza hut fór á hausinn og öllum var sagt upp. Jeij. en með hjálp internetsins fann ég mér vinnu um sumarið, vann í skólagörðum kópavogs :D það var mjög gaman skal ég segja þér.. mjög þæginlegur vinnutími, ágæt laun og svo fékk maður að vera úti! það hef ég ekki gert síðan ég var 15 ára! Þetta sumar var mjög skemmtilegt :) kannski fyrir utan þesa helvítis kálflugu sem kom og verpti við allt grænmetið og lirfurnar byrjuðu svo að éta það að innan :( Grey krakkarnir voru svo miður sín.. en það varð svo góð uppskera og seinustu tveir dagarnir í vinnunni voru örugglega erfiðustu dagar sumarsins hahaha því við þurftum að hjálpa öllum krökkunum og þeir voru um 62!! og að taka upp kartöflur er ekkert grín! bakið á mér var ónýtt í svona viku eftirá..
En þetta gekk samt mjög vel fyrir sig og krakkarnir fengu frissa og kex (sem við starfsmenn vorum líka duglegar að fá okkur..:P )
Það var samt einn vandi með það að hafa opna frissa á borðinu í skúrnum... Geitungar. Þeir löðuðust að frissanum eins og flugur að mykjuskán.. eða bara geitungar að sykruðum drykk haha
þar sem ég er með mikla fóbíu gegn geitungum varð ég mjög skelkuð í hvert skipti sem einn kom inn..

Vandinn við þessa vinnu er sá að hún endar í ágúst. Maður þarf nú pening til að lifa af veturinn svo ég er byrjuð að vinna hjá múttu á hverjum sunnudegi :) það er svosem ágætt, ágætur tími fer í að lesa heima haha líka fínt að fá smá tekjur svona með skóla.

Já.. svona er nú það.. kannski byrja ég að blogga aftur, sama hvort einhver les þetta eða ekki :)

Nýtt ár, flensa og læti..

04. janúar 2009 klukkan 03:58
Jæja, þá er maður búinn að taka sér „smá" pásu gott fólk. Það er komið nýtt ár. Og það er alveg næstum því ár síðan ég skrifaði hérna seinast.

Maður er orðinn svo háður þessu feisbúkk dóti að maður veit bara ekki hvað. Þótt ég viti ekkert hvað á að gera á þessu feisbúkki annað en að finna sér vini, skrifa komment, taka einhverjar kannanir og eitthvað shit. Ég hef nú samt fundið mér eitthvað að gera á þessum blessaða „World-domintaioner", og það er að spila tetris:D og reyndar bjó ég mér líka til eitthvað gæludýr og eitthvað shit...

Aaallavega, ég er hérna heima, veik og alein að horfa á einhverja leiðinlega franska mynd, og klukkan er að ganga 4. Tókst að næla mér í flensuna.. enn einu sinni.. er að kálast úr kvefastífluslímaógeði og er með hita og hálsbólgu og eitthvað shit. Fkn ömurlegt. Hausinn er að fara að springa.. ég er viss um það.
springa
Svo á Gísli náttla afmæli á morgun:D 21 árs. özzz hann er orðinn svo gamall hehehe

Æj ég er svo slappur að ég held ég hoppi bara í bólið.... bæjóbbs..

Sumarfrí, Próf, Ónýtt hleðslutæki og Ammæli :D

29. apríl 2008 klukkan 14:46
Blessuð og sæl börnin góð.
Kominn tími fyrir nýtt blogg býst ég við... Jamm, skólinn bara að verða búinn maar. Seinasti skóladagurinn á miðvikudaginn en þá taka við próf.
Shit.. vona að ég nái þessu drasli.. ÉG ÆTLA AÐ NÁ EÐLISFRÆÐINNI! Nenni svo alls ekki að taka þetta aftur!
eðl

Hleðslutækið mitt er að fríka út. Það er slitið eða eitthvað, allavega þegar ég setti það í samband í morgun þurfti ég að setja það í sérstaka stellingu og passa mig svo á að snerta það ekki. En svo í næsta tíma eftir þann tíma kom ekkert ljós á það (til að sýna að það er í sambandi eða e-ð) og svo byrjaði að heyrast skrítið hljóð í því! Þetta er fkn ANNAÐ hleðslutækið sem ég kaupi og bilar ÁKKÚRAT á þennan hátt!! Hættir að hlaða og byrjar að heyrast hátíðnihljóð! FKN DRASL!

Hleðslutækið mitt núna

Jebb ég á ammæli bráwum Brosandi Það er samt smá pæling hjá mér hvenær ég á að halda uppá það. Málið er það að mig langar að hafa alla en Rakel og Magnea komast hvorugar afmælishelgina mína. En hins vegar er Lovísa að fara til útlanda 17. Maí þannig að hún kemst ekki seinna. Þetta er nokkuð erfitt val.. en ég ef ég held uppá það helgina eftir. Þá eru allir búnir í prófum en þá er Gísli og strákarnir að vinna og mig langar endilega að fá þá líka... Svo er Ebba að fara að halda eitthvað um helgina þá og eitthvað..... Ohhhhh þetta er veeeesen.. Kannski ég haldi bara ekkert uppá það. Verð bara heima að gera ekki neitt eins og flesta afmælisdaga þar sem allir eru alltaf í prófum þá.. Æj ég veit ekki. Látið mig samt endilega vita hvort þið komist 16. 17. eða 18. Maí KANNSKI uppí BorganesHlæjandi
ammæliskeik
Gísli á módelárunum Glottandi

Já, vil bæta inn afmæliskveðju til mömmu minnar: TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU MAMMA!
Hlæjandi
Verið bless í bili

Ílæn

Leiðist.....

02. apríl 2008 klukkan 11:08
Jebbs jebbs.. er komin í skólann. alveg 3 tímum fyrrUllandi hehehe já núna hugsa eflaust flest ykkar með ykkur "HA?? Elín að vakna FYRR??? Hvað er í gangi?" En ég er að vakna svona fyrr því ég er að reyna að klára einhverja helvítis ritgerð í jarðfræði... og bókin sem ég er að nota er bara hérna á bókasafninu í skólanum og maður má víst ekki taka út af því (ég er samt að pæla að spyrja...)
jamm.. ég er búin að vakna fyrr alla vikuna. Á mánudaginn til að finna þessa hjúkku til að skila inn læknisvottorði. Svo bara þessi ritgerð og reyndar önnur ritgerð í líffræði en ég er búin að klára hana^^
Hún jallaði um mun katta og manna hehehe skrítið hvað litlar kisur eru líkar mönnumHlæjandi

Kittie!

Oj hvað Alzheimer er krípí sjúkdómur (var að hlusta á fyrirlestra í gær)... fólk byrjar að kannast ekki við nánustu ættingja eða neinn í kringum sig. Rata ekki neitt.. geta svo ekki borðað, þrifið eða neitt. Orðinn bara háður öðrum. Hljómar ömurlega.. Bara einn í sínum heimiFýldur

Eeeeeen já. Jájá... Gísli er eitthvað að reyna að sannfæra mig í að fara að drekka á laugardaginn... ég er varla að nenna því.. svo ætluðum við í sund líka... held samt að það sé ekkert svaka gaman að fara í sund þunnur........... Svo langar honum eitthvað í keilu..
Málið er það að ég bara KANN ekki keilu.. en ætli maður fari ekki fyrir kallinn..

Jamm ég ætla nú að hætta að taka mér pásu og fara að læra.

þunnur +
synda =
æla

- Elín Glottandi

Ömurlega drasl

31. janúar 2008 klukkan 10:58

Fimmtudagar sjúga böll!

Já þið lásuð rétt gott fólk, fimmtudagar sökka. Það er eini virki dagurinn sem ég þarf að vinna á og þetta er eini dagurinn sem ég þarf að mæta fyrir hádegi í skólann!!

Dagurinn í dag (sem er btw fimmtudagur) byrjar á því að Gísli skellur hökunni óvart í kinnbeinið á mér. Svo kem ég í skólann, alveg dauðþreytt og einhvernveginn tekst mér að TÝNA FOKKING LYKLUNUM MÍNUM!!! Ég er alveg brjáluð! Einhver hefur tekið helvítis lyklana! Djöfull er ég pirruð! Og það þýddi að ég komst ekki í skápinn minn sem að geymdi skónna og úlpuna mína sem er með bíllyklana í vasanum þannig að ég hefði ekki getað keyrt heim, og það þýddi líka að ég hefði heldur ekkert getað komist heim vegna lyklamissis, og að komast ekki í skápinn með úlpunni þýddi það að ég hefði ekki getað keypt mér neitt að éta þar sem kortið mitt er líka í úlpuvasanum! En Thelma hjálpaði mér, hún spurði húsvörðinn hvort hann gæti ekki opnað skápinn og hann gat það:) þannig að ég get keypt mér eitthvað að borða... en ég kemst ekki heim.. og ég er í eyðu til 13:40... og klukkan er bara 11... FOKKING ÖMURLEGA DRASL!!! Andskotinn hirði þetta helvítis fjandans drasl! Ég er fokking föst í þessu helvítis skólaógeði!

Ég hata allt!

Jóla-hvað?

21. desember 2007 klukkan 19:22
Jei.

Jól eftir hva.. 3 daga?

shit


Fór í jarðarför í dag. Hjá honum Högna. Shit ég var varla að meika það þarna inni.. Táraðist og bara einfaldlega grenjaði næstum því allan tímann. Svona ungt fólk á bara ekki að deyja. Hræðilegt. Ég get eiginlega ekki lýst því hvernig mér líður... það er bara svo skrítið að vita það að strákur sem var með manni í grunnskóla, jafngamall manni sjálfum, hafi bara dáið um daginn.. Æ vá mér finnst þetta svo sorglegt.

o jæja.. ætla að taka til...

bæbb

Jólalög... oj..

09. desember 2007 klukkan 14:41

Jamm og jájá.. Jólin bara að fara að koma.. og ég sem á eftir að kaupa alveg helling af jólagjöfumFýldur

Svo lítill tími... svo margar gjafir...Gráta

En já, eins og ég sagði og margir eflaust vita þá eru jólin víst að koma og það þýðir að flestar útvarpsstöðvar eru farnar að nauðga jólalögunum fast í rassgatið enn eina ferðina. Það er það sem ég þooooooli svo engan vegin við jólin; þessi fokking jólalög!!! ARG! Ömurlega drasl! Það er svo ógeðslega leiðinlegt að fara núna í vinnuna þegar yfirmaður manns er að vinna þar sem hann setur þennan fokking jóladisk sinn í tækið og spilar hann aaaallan daginn aftur og aftur. Og á þessum disk er hreinlega búin að EIÐINLEGGJA eitt lag fyrir mér sem er með Iron maiden. Það er búið að gera helvítis JÓLATEXTA við þetta æðislega lag!!! Og það á ÍSLENSKU!!! Sem er ennþá verra þar sem íslensk jólalög sjúga feeeeeitt! Oh, svo þoli ég ekki að fara niðrí smáralind þar sem er verið að spila þessi andsk.. lög aftur og aftur sem er búið að vera að nauðga í fjölda ára. Svo er verið að gera diska með fáranlega glöðu fólki framaná (eins og “Ég skemmti mér um jólin” eða hvað sem þessi diskur heitir... ég gjörsamlega HATA þetta fólk.. það er bara hreinlega svo ógeðslegt að ég gæti ælt)
Ég veit að þeir sem eru að nenna að lesa þetta hugsa eflaust með sér “Djöfull er hún bitur maður...” Ég hef bara aldrei getað þolað jólalög (kannski þegar ég var lítil.. man það ekki). Núna er ég bara gjörsamlega búin að fá nóg af þeim! Annars er allt annað í fínu lagi með jólin sko... jólalög sökka bara svo ógeðslega mikið... sama helvítis draslið ár eftir ár, og svo er verið að reyna að semja einhver ný og þau eru ennþá meira drasl!

Jæja, ég nenni ekki að skrifa nýtt blogg fyrr en svona eftir jól eða eitthvað, þannig að ég segi bara “Gleðileg Jól!”

Blogg síðan í gær...

26. nóvember 2007 klukkan 08:34
Jæja, fyrst að allir eru svona óþolinmóðir við mann hérna.. og eru með hótanir í gangi og allt.. þá ætla ég að gera eitt helv*** blogg hér.Já. Hér sit ég í íbúðinni hans Gísla og er að reyna að læra hérna með henni Hafdísi. Ekki alveg að ganga.. en samt.. komið svona smá í gang. Gísli er í vinnunni og svo á ég víst að sækja hann þegar hann er búinn. Hann ákvað það að við ætluðum að panta sko pizzu í kvöld.. ég er reyndar ekkert á móti því:p langar alveg í pizzu sko.
En já, ég og Hafdís tókum okkur smá “pásu” áðan (byrjuðum bara að tala saman á fullu hehehe) og svo alltí einu tókum við eftir því hvað það voru mikið að bjórdósum hérna á borðinu sem við erum að læra við. Þannig að við byrjuðum að taka til. Munurinn varð frekar mikill hehehe meira pláss hérna á borðinu og svona:D næst eru það glösin hahaha!
Í gær sótti ég Gísla og við fórum svo heim til hans og höfðum það bara nokkuð kósí.. horfðum á einhverja leiðinlega mynd reyndar.. en það var fínt að vera bara svona tvö baraBrosandi
Það er kominn einhver Queen fílingur í okkur Hafdísi. Erum að hlusta á Queen lögin sem eru hérna í tölvunni minni. Hjólakapphlaup er í miklu uppáhaldi hjá merUllandi
En já.. nenni nú varla að skrifa meira í bili... haldiði bara áfram að kvarta.. læk æ ker! Mwuhahaha!!
Bless.
Elín

Heiðni

22. október 2007 klukkan 15:01
Ég vil að við íslendingar tökum upp heiðni aftur. Kristin trú er bara rugl og svo er ásatrúin bara miklu meira töff. Svalir víkingar að drepa jötna og ormur í hafinu og fullt af fleiru rugli sem er mjög nett.
Thelma var að segja mér það að hún var að hlusta á fm957 og að Gunnar í Krossinum var að tala um einhvern heimsendi og eitthvað fleira kjaftæði um að mjög trúað fólk myndi bara bjargast og eitthvað bull. Ég sjálf myndi með glöðu bragði taka upp ásatrú jafnvel þótt að ég trúi ekki beint á það.. en ég myndi samt gera það bara útaf því hversu töff hún er.

9 dagar þar til við förum til Parísar!!! Hlæjandi oh ég hlakka svo til!!! En það er bara eitt.. ég á eftir að sakna Gísla svo mikiðFýldur sniff

jæja.. tíminn er búinn
sjáumst
blee

Tuttuguogeins árs!

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The grasping shirt Funny Images, Give Baldy Your Tit Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it…

Leit